Go back
Ds. Ramus - Sumarskátastarf
Go back

Ds. Ramus - Sumarskátastarf

  • 14 - 16 years old
  • 9.5.2025 - 7.8.2025
  • Klambratún,

Skátasveitin DS. Ramus mun starfa í sumar á höfuðborgarsvæðinu og er öllum dróttskátum velkomið að taka þátt. Krakkar sem ekki hafa verið í skátunum eru einnig velkomin að koma og vera með í sumar. Skátafundir munu fara fram víðsvegar um höfuðborgarsvæðið milli 17:30 og 19:30 á þriðjudögum og fimmtudögum frá og með 19. júní til 7. ágúst.

Starfið byggist að mestu á flokkastarfi og gefst skátunum færi á að skapa sín eigin sumarævintýr með öðrum jafningjum á ýmsum útivistarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring. Þeir skátar sem ekki skrá sig með flokk munu fá aðstoð við að finna flokk og sem hentar þeim.

Fyrstu fundir munu fara fram á Klambratúni en mæting er við Kjarvalsstaði klukkan 17:30 á fyrsta fundinn þann 19. júní.

Til að taka þátt þarf að skrá sig inn áhttps://www.abler.io/shop/skatarnirog kostar 3000 kr fyrir hvern skáta að taka þátt í allt sumar. Dróttskátar sem vegna ferðalaga eða annars komast ekki á alla fundi, eru engu að síður hvött til að taka þátt.

Mikilvægt er síðan að fylgjast vel með upplýsingum á Abler. Einnig þarf að láta vita fyrir hvern fund hvort skáti mætir eða ekki. Ef lágmarksmæting (4 skátar) næst ekki á fund fyrir hádegi sama dag fellur fundurinn þann daginn niður.

Skátakveðjur og hlökkum til að sjá sem flest í sumar,
Ungmennaráð BÍS


Með því að skrá skátann samþykkir þú eftirfarandi skilmála vegna Sumarskátastarfs 2025. 

  1. Staðfestingargjaldið er 10% af verðinu, 300 kr. og er óafturkræft.
  2. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyta af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi. Bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  3. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér; https://skatarnir.is/personuverndarstefna/
  4. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af skráningargjaldi sem hér segir:
    1. Staðfestingargjaldið, 10% af viðburðagjaldi er óafturkræft.
    2. Ef hætt er við þátttöku innan 30 daga fyrir upphaf viðburðar er 50% af viðburðargjaldi haldið eftir.
    3. Ef skátinn hættir við þátttöku innan 14 daga fyrir upphaf viðburðar er 75% af viðburðargjaldi haldið eftir.
    4. Ef skátinn hættir við þátttöku innan 7 daga verður endurgreiðslan engin. 
  5. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna, s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslur til þátttakenda að teknu tilliti til þess kostnaðar em lagður hefur verið út vegna viðburðarins og fæst ekki endurgreiddur.

Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.