
Vélmennaforritun
- 8 - 12 years old
- 15.4.2025 - 20.7.2025
- Menntavegur,
Námskeiðið er haldið í Háskólanum í Reykjavík kl. 9-12
Um námskeiðið
Vissir þú að Sphero var notaður til að búa til BB-8 vélmennið í Star Wars myndunum? Framleiðendur forrituðu Sphero í BB-8 búningi til að leika í myndunum.
Sphero er ekki bara vélmennaleikfang heldur fjölbreytt kennslutól sem veitir börnum innblástur og ýtir undir forvitni, sköpunargáfu og nýsköpun. Sphero er notaður í leik- og grunnskólum um allan heim til að kenna STEAM greinar (Science, Technology, Engineering, Arts and Math).
Á námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að læra um forritun og stærðfræði á skemmtilegan hátt! Nemendur vinna með Sphero vélmennið og læra grunnhugtök forritunar og dýpka skilning sinn á stærðfræði í leiðinni. Náin tengsl forritunar og stærðfræði eru þannig nýtt til að færa stærðfræði á sjónrænt og gagnvirkt plan þar sem nemendur geta séð stærðfræðina verða að veruleika. Nemendur vinna stutt verkefni þar sem Sphero er forritaður til að ná ákveðnu markmiði. Hvert verkefni snýst um ákveðna þætti forritunar og stærðfræði.