Go back
WorldFit Grunnnámskeið
Go back

WorldFit Grunnnámskeið

  • 17 - 125 years old
  • 23.5.2025 - 15.6.2025
  • Reykjavík,

WorldFit | Grunnnámskeið + WorldFit mánuður

Það hefur sýnt sig og sannað að aðilar taka miklum framförum á grunnnámskeiði, kynnast því sem við erum að gera í WorldFit, læra margt nýtt og byggja upp góðan grunn. Oftar en ekki eru það öflugir íþróttamenn, íþróttafræðingar og einkaþjálfarar sem hafa orð á því hvað grunnnámskeiðið er ítarlegt, fróðlegt og skemmtilegt.

Mikil áhersla er lögð á tæknilegu atriðin í hreyfingum, undirstöðuatriðin í Ólympískum lyftingum og margt fleira.

Grunnnámskeiðið er ein vika og er haldin á eftirfarandi stöðum:

WorldFit Kringlan: mánu-, mið- og fimmtudagur frá klukkan 19:30-21:00.
WorldFit Tjarnavellir: mánu-, mið- og fimmtudagur frá klukkan 19:30-21:00.
WorldFit Vatnsmýri: mánu-, mið- og fimmtudagur frá kl 19:30-21:00.
WorldFit Selfossi: mánu-, mið- og fimmtudagur frá kl 19:00-20:30.​

Að loknu grunnnámskeiði virkjast 4 vikna kort í WorldFit.

ATH:

1. Til að gerast WorldFit meðlimur skal ljúka upprifjunar- og grunnnámskeiði WorldFit.

2. Meðlimir WorldFit þurfa að eiga kort í World Class.

Nánari upplýsingar: worldfit@worldclass.is