
Krakkaklúbburinn Krummi: Fljúgðu, fljúgðu fiðrildi
- 8.2.2025 - 8.2.2025
- Hverfisgata 15, 101 Reykjavík
Krakkaklúbburinn Krummi í Safnahúsinu!
Listasmiðja: Fljúgðu, fljúgðu fiðrildi
Við flögrum inn í Safnahúsið, fljúgum í fallegri innsetningu Doddu Maggýjar sem ber heitið DeCore og búum svo til okkar eigin fiðrildi sem fljúga svo með okkur heim. Veltum fyrir okkur náttúrunni, symmetríu og mynstrum sem birtast okkur á degi hverjum.
Leiðbeinandi: Ragnheiður Gestsdóttir myndlistarmaður
FRÍTT fyrir alla fjölskylduna!
---
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.
Með starfrækslu krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.