
Sumarnámskeið 16+ Undir berum himni: Teikning
- 9.8.2025 - 17.8.2025
- Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík
Þetta námskeið í teikningu er fyrir alla þá sem eru forvitnir um umhverfi sitt. Námskeiðið fer fram bæði innan- og utandyra. Nemendur munu teikna stokka og steina og hina ýmsu fugla innandyra áður en þeir halda út með teiknispjöld, pappír og teikniáhöld til að fanga náttúruna ýmist hér á Hlemmi eða úti á Laugarnesi.
Kennslan er einstaklingsmiðuð og námskeiðið ekki síður fyrir byrjendur en lengra komna.
Námskeiðið verður á laugardags- og sunnudagsmorgnum á tímabilinu 9. til 17. ágúst, alls í fjögur skipti.
Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku. Kennari námskeiðsins er Halldór Baldursson, yfirkennari teiknibrautar Myndlistaskólans.