Til baka
Sumarnámskeið 16+   Leirrennsla
Til baka

Sumarnámskeið 16+ Leirrennsla

  • 3.6.2025 - 26.6.2025
  • Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík
Um er að ræða grunnnámskeið í leirrennslu þar sem kennt er á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer sömuleiðis fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær til afnota rennibekk og vinnur að verkefnum sem eru skipulögð í samráði við kennara. Markmiðið er að færni nemenda til að renna styrkist eftir því sem á námskeiðið líður og að þeir verði farnir að geta rennt fyrirframákveðin form áður en námskeiðinu lýkur. Nemendur kynnast heildstæðu ferli leirmunagerðar þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Þar að auki er þeim kennt að glerja og leiðbeint um hvers konar glerungar henti renndum hlutum. Lagt er upp úr því að á námskeiðinu skapist góður vinnuandi og að andrúmsloftið sé ekki ósvipað því sem almennt er að finna á keramikverkstæðum. Námskeiðið er byggt upp með þarfir byrjenda í huga en þeir sem hafa reynslu og þekkingu á leirrennslu er þrátt fyrir það velkomið að sækja námskeiðið. Námskeiðið verður 3. til 26. júní á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum. Hins vegar verður síðasti tími námskeiðsins haldinn þriðjudaginn 12. ágúst en þá verða vel valdir leirmunir af námskeiðinu glerjaðir.