Til baka
Byrjendaæfingar T.R. - Vor 2026
Til baka

Byrjendaæfingar T.R. - Vor 2026

  • 5 - 14 ára
  • 29.12.2025 - 24.4.2026
  • Taflfélag

Byrjendæfingar eru einu sinni í viku Lau kl.11:15-12:15. Manngangskennsla hefst kl:10:40

Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem kunna allan mannganginn og þyrstir í að læra meira og ná betri tökum á skáklistinni.

Á æfingunni tefla börnin hvert við annað í bland við létta kennslu. Börnin læra almennar reglur sem gilda á skákmótum og þau venjast því að tefla með klukku. Auk þess munu börnin læra grunnatriði á borð við liðsskipan og einföld mát.

Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974 tölvupóstur:torfi@taflfelag.is). Meðkennarar hans eru Benedikt Þórisson og Iðunn Helgadóttir