
Stjörnuland 10. - 13. júní 2025
- 6 - 9 ára
- 10.6.2025 - 13.6.2025
- Kirkjustétt 2-6
Sumarfrístundin er milli klukkan 8:30 og 16:30. Börnin þurfa að hafa með sér þrjú nesti, morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu.
Dagskrá sem byggir á frjálsum leik, hreyfingu, útiveru, skapandi starfi, smiðjum, þemadögum og ferðum. Áhersla er lögð á að virkja börnin til ákvarðanatöku um hina ýmsu þætti starfsins. Í upphafi hverrar viku er barnaráðsfundur þar sem börnunum gefst kostur á að hafa áhrif á dagskrá. Við dagskrárgerð er reynt að hafa mismunandi dagskrá fyrir ólíka aldurshópa og mögulega verður samstarf milli frístundaheimila varðandi börnin úr 3. og 4. bekk t.d. um lengri ferðir. Dagskrá verður send forsjáraðilum á fimmtudegi fyrir komandi viku.