
Haust 2025 | 6-9 ára: Myndlist
- 10.9.2025 - 10.9.2025
- Rauðarárstígur 5, 105 Reykjavík
Á þessu lifandi og skapandi námskeiði eru unnin fjölbreytt verkefni með áherslu á skapandi hugsun, persónulega tjáningu og á að þroska vinnubrögð einstaklingsins. Mismunandi miðlar eru teknir fyrir og nemendur fá að kynnast mismunandi efnum. Unnin verða tvívíddar og þrívíddar verk þar sem áhersla verður lögð á grundvallaratriði sjónlista; form, liti, áferð og lýsingu.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.
6 námskeiðshópar og 12 vikur hver.
Hópur 69103: (föstudagar) 5. september-28. nóvember frá 15:15-17:00
Hópur 69104: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 10:15-12:00
Hópur 69105: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 10:15-12:00
Hópur 69106: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 12:45-14:30
Hópur 69107: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 12:45-14:30
Hópur 69101: (miðvikudagar) 10. september-26. nóvember frá 15:15-17:00