
Haust 2025 | 13-16 ára: Litur, lína og form
- 9.9.2025 - 9.9.2025
- Rauðarárstígur 5, 105 Reykjavík
Á þessu námskeiði vinna nemendur með helstu þætti myndlistar: línu, liti, form, áferð, ljós og skugga. Verkefnin ná bæði til tvívíðra verka – s.s. teikningar og málverka – og þrívíðrar vinnu, þar sem unnið er með mótun og efnivið eins og leir. Einn hluti námskeiðsins felst í gerð andlitsmyndar úr leir með lifandi fyrirmynd.
Fullkomið námskeið fyrir þá sem vilja prófa margskonar aðferðir, tjá sig í gegnum list og efla sjálfstraust í eigin sköpun.
Námskeiðið er 12 vikur.
Hópur 1316102: (þriðjudagar) 9. september-2. desember frá 17:30-19:55