Til baka
Framhaldsflokkur I - Vor 2026
Til baka

Framhaldsflokkur I - Vor 2026

  • 7 - 15 ára
  • 29.12.2025 - 29.4.2026
  • Taflfélag

Æfingunum í framhaldsflokki er ætlað að koma til móts við þau skákbörn TR, af báðum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á að taka framförum í skáklistinni. Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir börn sem hafa æft skák áður og hafa reynslu af að tefla í skákmótum.

Á æfingunum kynnast nemendur hugmyndum og nöfnum á helstu skákbyrjunum og hvernig útfæra eigi áætlun í miðtafli út frá byrjunartaflmennsku. Jafnframt verður lögð áhersla á að nemendur læri lykilatriði í endatöflum og geti sýnt fram á kunnáttu sína við taflborðið. Á æfingunum munu nemendur fylgjast með fyrirlestrum og kennslu þjálfara og leysa verkefni úr kennsluefninu bæði einir og sér og í hóp, á verkefnablöðum og við taflborð. Nemendur verða hvattir til þátttöku í skákmótum og leiðbeint um val á mótum. Jafnframt fá nemendur leiðbeiningar um hvernig þeir geti æft sig sjálfir heima, hafi þeir áhuga á. 

Kennt er tvisvar í viku

Miðvikudögum: 17:00-18:20

Laugardögum: 11:15 -12:15

Tíminn í Framhaldsflokki I á laugardögum fer fram upp á lofti í TR, gengið upp stigann hjá innganginum í aðalskáksal.

Umsjón með framhaldsflokki I hefur Gauti Páll Jónsson (sími: 691 9937, tölvupóstur:  gauti.pj@hotmail.com). Gauti Páll er fyrrum skólameistari Reykjavíkur og Íslandsmeistari 22 ára og yngri árið 2018. Með honum til aðstoðar á miðvikudögum er Benedikt Þórisson