Til baka
Haust 2025 | 4-5 ára: Myndlist
Til baka

Haust 2025 | 4-5 ára: Myndlist

  • 6.9.2025 - 6.9.2025
  • Rauðarárstígur 5, 105 Reykjavík
Á námskeiðinu eru unnin fjölbreytt verkefni með áherslu á skapandi hugsun, persónulega tjáningu og á að þroska vinnubrögð einstaklingsins. Mismunandi miðlar eru teknir fyrir og nemendur fá að kynnast ólíkum efnum. Unnin verða tvívíddar og þrívíddar verk þar sem áhersla verður lögð á grundvallaratriði sjónlista; form, liti, áferð og lýsingu. Tveir námskeiðshópar og 12 vikur hver. *Hópur 45101: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 10:15-12:00 *Hópur 45102: (laugardagar) 6. september-29. nóvember frá 12:45-14:30