Til baka
Höllin -  Vika 6, 11. til 15. ágúst 2025
Til baka

Höllin - Vika 6, 11. til 15. ágúst 2025

  • 10 - 16 ára
  • 11.8.2025 - 15.8.2025
  • Egilshöll, Fossaleyni 1
Höllin er sértæk félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 5. – 10. bekk með fötlun sem búa í 110, 112 og 113. Á sumrin býður Höllin upp á fjölbreytt og skemmtileg vikunámskeið þar sem áhersla er á útivist og ýmis ævintýri. Um er að ræða heilsdags sumarstarf fyrir fötluð börn og unglinga í 5.-10. bekk sem byggir á einstaklingsmiðari þjónustu og uppeldisgildum frítímastarfs Sumarfrístundin er á milli klukkan 8:30 og 16:30. Börn og unglingar þurfa að hafa með sér þrjú nesti, morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu.