
Fálkaskátar Skjöldunga
- 11 - 14 ára
- 25.8.2025 - 1.5.2026
- Skjoldungar,
Nú fer starfsárið að hefjast, fyrstu fundir eru í vikunni 8.-14. september. Í sveit Fálkaskáta eru 30 pláss en við hvetjum ykkur til að skrá börnin á biðlista ef plássin eru orðin full.
Þau sem voru skráð í félagið á fyrra starfsári fá forgang í skráningu á komandi starfsári. Þau verða forskráð inn í Abler og hafa fram að 5. september til að staðfesta skráninguna. Eftir það verður unnið úr biðlistum í allar sveitir ef einhverjir eru.
Fálkaskátar Skjöldunga starfsárið 2025-2026
Fálkaskátar eru á aldrinum 10-12 ára.
Fálkaskátar hittast á miðvikudögum kl. 18:00 - 19:30.
Ýmislegt nýtt býðst skátum þegar þeir komast á fálkaskátaaldur. Fálkaskátar byrja að taka þátt í ýmsum félagsviðburðum, þau fara í eigin helgarferðir með jafnöldrum í sínu félagi ásamt því að geta í fyrsta sinn tekið þátt í ýmsum landslægum viðburðum eins og fálkaskátadeginum og Landsmóti skáta.
Á þessum aldri fá skátarnir meiru ráðið um eigin dagskrá og geta mótað dagskráráherslur eftir því hvar þeirra eiginn áhugi liggur en áhersla er lögð á útivist, ferðamennsku, lýðræði, sköpun, samvinnu og samfélag. Fálkaskátar öðlast víðtæka kunnáttu og mæta ögrandi áskorunum sem styrkja samtímis útsjónarsemi þeirra, kjark og sjálfsöruggi.
Fálkaskátasveitin hittist vikulega. Fálkaskátar byrja að starfa í svokölluðum skátaflokkum þar sem 5-8 skátar vinna saman yfir starfsárið og öðlast um leið mikla reynslu í samvinnu og samskiptum. Á þessum aldri er meiri áhersla lögð á að sinna áhugasviði hvers skáta og skátaflokkurinn mótar eigin dagskrá með stuðningi eldri sjálfboðaliða. Skátarnir hafa aðgengi að allskyns tilbúinni dagskrá til að velja úr eða aðlaga eftir eigin höfði en fá einnig tækifæri til að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd. Fálkaskátasveitin starfar líka oft sem heild eins og þegar stærri dagskrárliðir eru á dagskrá og í undirbúningi ferða. Skátaforingjar fálkaskáta hafa líka áhrif á dagskrána til að skátarnir séu rétt undirbúnir fyrir þær áskoranir sem þau mæta á starfsárinu. Foringjarnir sjá einnig til þess að skátarnir öðlist vissa kunnáttu á fálkaskátaaldri og styðja fálkaskátana til að víkka enn frekar sjóndeildarhringinn.
ATH.
Vegna mikillar eftirspurnar þá er takmarkað pláss, þegar Fálkaskátasveitinn er full þá mun myndast biðlisti
Staðsetning:Skátaheimili Skjöldunga
Sólheimar 21a
104 Reykjavík
Nánari upplýsingar: skjoldungar.is
skjoldungar@skatarnir.is