
Hopp og skopp
- 6 - 9 ára
- 10.6.2025 - 13.6.2025
- Kleifarsel 18
Af hverju viljum við vera hraust og stunda íþróttir? Af hverju að borða hollan mat? Helstu áhersluþættir heilbrigðis eru jákvæð og raunsönn sjálfsmynd, hreyfing, næring, hvíld, andleg vellíðan, góð samskipti, öryggi, hreinlæti og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. Heilsulæsi er mikilvægt í því samhengi en það fjallar um að við tileinkum okkur þekkingu og hæfni til þess að afla okkur upplýsinga og nota þær til heilsueflingar.