
Lestrarmiðstöð Auðar
- 9 - 19 ára
- 1.1.2026 - 31.12.2026
- Álfabakki
Námskeið: Lestur til alls
Læsi í víðum skilningi, lestur, talað mál, tjáning, ritun og tölvu- og upplýsingafærni. Kennt er einu sinni í viku 60 mínútur í senn. Markmið námskeiðsins er:
Að auka lestrarfærni og sjálfstraust nemenda gegnum vinnu með tjáningu, lestur og ritun.
Að þjálfa nemendurí að nýta sér fjölbreytta möguleika tækninnar við lestur og ritun.
Einstaklingstímar eða fámennir hópar. Hafið samband audur@lestur.is
Það sem við gerum
Lestrarmiðstöðin veitir sérhæfða kennslu í lestri fyrir börn og fullorðna með leshömlun (dyslexia). Einnig kennslu í lestrartengdum námsgreinum því erfiðleikar í lestri koma víða fram í námi svo sem í lesskilningi, ritun, stafsetningu og erlendum tungumálum. Lestrarmiðstöð í Mjódd er með síðu á facebook.
Aðferðin okkar
Í Lestrarmiðstöð er unnið með grunnþætti lestrar samkvæmt kennsluaðferðum sem byggja á rannsóknum á leshömlun og aðferðum sem reynst hafa árangursríkar við lestrarkennslu. Markmið okkar hefur frá upphafi verið að allir sem til okkar koma sýni framfarir, við byggjum kennsluna upp á jákvæðni, nýtum fjölbreyttar leiðir við þjálfun, nýtum tölvutæknina, rafbækur og hljóðefni. Við höfum síðan árið 2001 sinnt nemendum á öllum aldri og verið farsæl í störfum okkar.