Til baka
Reiðskóli Reykjavíkur sumarnámskeið 2025: Námskeið 4, 21.júlí- 1.ágúst kl. 9-12
Til baka

Reiðskóli Reykjavíkur sumarnámskeið 2025: Námskeið 4, 21.júlí- 1.ágúst kl. 9-12

  • Allur aldur
  • 12.3.2025 - 20.7.2025
  • Vatnsveituvegur,

Það ættu allir krakkar að finna reiðnámskeið við hæfi.🤠 Fjögur mismunandi námskeið eru í boði :

🐴Byrjendanámskeið | Ævintýranámskeið

Framhald 1 | Framhald 2🐴


Lýsing á námskeiðunum🤠

Byrjendanámskeið er fyrir þau börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni. Við förum rólega af stað og æfum jafnvægi, ásetu og förum stutta reiðtúra. Lögð er áhersla á að byggja upp traust við hestinn.


Framhaldsnámskeið 1 er fyrir þau börn sem hafa sótt tveggja vikna námskeið áður eða hafa reynslu af hestamennsku.

Í þessum hópi þurfa nemendur að kunna undirstöðuatriðin í reiðmennsku. Lögð er áhersla á jafnvægi og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn.


Framhaldsnámskeið 2 eru fyrir börn sem hafa sótt tvö til þrjú námskeið áður og hafa reynslu af hestamennsku.

Á þessu námskeiði er farið í mun lengri reiðtúra en á Framhaldi 1 og meiri kröfur gerðar til ásetu, stjórnunar og jafnvægis. Farið er í skemmtilega reiðtúra í t.d. inn í Heiðmörk, niður í Elliðaárdalinn og í kringum Rauðavatn.


Ævintýranámskeið: Á ævintýranámskeiði er lögð áhersla á langa reiðtúra og hvernig ber að hirða hestinn á ferðalögum. Nesti er tekið með í reiðtúrana og við borðum saman nestið í náttúrunni. Lagt verður til sunds ef veður leyfir. Einungis vön börn geta sótt þetta námskeið.