Til baka
Uggar (Grafarvogslaug)
Til baka

Uggar (Grafarvogslaug)

  • 8 - 11 ára
  • 27.12.2025 - 28.5.2026
  • Grafarvogslaug,

Uggar er fyrir 8-10. ára. 


Æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl 16:45-17:45 í 25m útilaug. 


Börnin þurfa að vera orðin fær um að fara sjálf í klefann og koma sér í laugina. Mælum með að börnin treysti sér í að synda í 25 metra laug sem er djúp og hafi einhverja sundfærni áður en þau byrja í hópnum. T.d. tekið sumarnámskeið, sundskóla, Buslara / Svamlara hóp til að vera í þessum hóp. Ef þið eruð í vandræðum með að velja hóp hafið samband við yfirþjálfara sem getur aðstoðað að velja réttan hóp fyrir barnið, á sund@armenningar.is.


Markmið: Lærðu að synda, áhersla á tækni og sundfærni í gegnum einfaldar æfingar og leiki 

 • Læra öndun í vatni 

 • Flot, spyrnur og stungur 

 • Sporð, snúninga og kafsundstak 

 • Læra að synda skriðsund, baksund, bringusund og byrja að læra flugsund 

 • Geta synt 25m án þess að stoppa 

 • Æfa að keppa á innanfélagsmótum 


Börnin eiga að vera með sundgleraugu og sundhettu á æfingum. Þegar þjálfari metur að börnin hafa náð færni til að færast upp um hóp, verður haft samband við foreldra. 


Þjálfari: Jóhanna Eza