
Buslarar (Laugardalslaug)
- 5 - 7 ára
- 16.12.2025 - 24.5.2026
- Sundlaugavegur
Buslarar eru fyrir 5-7. ára gömul börn
Fyrsti byrjenda æfingahópur. Fyrir börn með enga eða litla reynslu af sundi eins og sumar sundnámskeið eða sundskólanámskeið Ármanns.
Æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:15-17:55
Markmið: Vatnsaðlögun og læra undirstöðu í sundi í gegnum einfaldar æfingar og leik
• Öryggi í vatni
• Flot og köfun
• Spyrnur og stungur
• Öndun í vatni
• Læra undirstöðu í skriðsundi, baksundi og flugfætur
• Geta synt eina ferð í barnalaug án kúta
Æft er í útilaug á barnasvæðinu 2 x 40 mín á viku.
Foreldrar fylgja börnunum í gegnum klefa og út í laugina þar sem þjálfarar taka á móti þeim sem sjá um námskeiðin. Við mælum með að börnin séu með sundgleraugu og sundhettu. Þegar þjálfari metur að börnin hafa náð færni til að færast upp um hóp, verður haft samband við foreldra.
Þjálfari: Valeria