Til baka
Fermingarfræðsla 2026-2027
Til baka

Fermingarfræðsla 2026-2027

  • 12 - 14 ára
  • 24.3.2026 - 24.3.2027
  • Neskirkja,

Fermingarstarfið hefst með kynningarfundi sunnudaginn 16. ágúst kl. 18.00. Fundurinn er bæði fyrir foreldra og börn.

Sumarnámskeið verður mánudaginn 17 – fimmtudagsins 20. ágúst milli kl. 10 – 15

Kennslugögn verða afhent í kirkjunni. Mætingarskylda er alla dagana. Fermingarbörnin fá bæði hádegisverð og síðdegishressingu. Fermingarferðir í Vatnaskóg eru 11.-13. september (drengir) og 18.-20. september fyrir stúlkur. Vatnaskógarferðin er mikilvægur hluti fræðslunnar og reiknað er með þátttöku allra fermingarbarna. 

Ath. fermingarferðin í Vatnaskóg er innifalin í fræðslugjaldinu. 

Fermingarfræðslan er opin öllum ungmennum á fermingaraldri óháð trúfélagsaðild sem hafa áhuga á því að fræðast um kristna trú og fermast.

Ath. við leggjum áherslu á að öll börn á fermingaraldri eigi þess kost að koma í fermingarfræðslu og á fjárhagur fjölskyldunnar ekki að vera hindrum,þegar svo ber undir mega foreldrargjarnan hafa samband sr. Jón Ómar Gunnarsson prest í Neskirkju (jonomar@neskirkju.is).