Til baka
Haust 2025 | 10-12 ára: Manga teikning
Til baka

Haust 2025 | 10-12 ára: Manga teikning

  • 11.9.2025 - 11.9.2025
  • Rauðarárstígur 5, 105 Reykjavík
Á námskeiðinu læra nemendur að þróa persónu frá hugmynd í fullunnið verk. Nemendur þjálfast í að teikna persónu frá mismunandi sjónarhornum, í mismunandi stellingum, rýmum og tjá svipbrigði þeirra. Lögð er áhersla á „Manga“ teiknistílinn, mismunandi einkenni hans og mikilvægi persónusköpunar. Lögð er áhersla á að nemendur læri gott handbragð og tileinki sér aðferðafræði myndasagna. Kennslan er einstaklingsmiðuð og er því bæði sniðin að byrjendum og lengra komnum. Námskeiðið er 12 vikur. Hópur 1012106: (fimmtudagar) 11. september-27. nóvember frá 15:00-17:15