Til baka
Ungbarnafimi 1 - 2 ára-
Til baka

Ungbarnafimi 1 - 2 ára-

  • 2 - 3 ára
  • 12.12.2025 - 31.3.2026
  • Norðlingabraut

Ungbarnafimi er fyrir börn sem eru 1-2 ára. Námskeiðið er 14 vikna námskeið og er kennt 1x í viku á laugardögum og er hver tími 45 mínútur. Kennsla fer fram í Fylkissel, Norðlingabraut 12. Kennsla hefst laugardaginn 10 janúar 2026.

Börnin mæta með foreldrum sínum og foreldrar aðstoða börnin. Byrjað er á upphitun og síðan er farið í gegnum þrautabrautir og ýmsar æfingar sem eflir hreyfiþroska barnanna.

Markmið námskeiðsins er að æfa samhæfingu, jafnvægi, fín- og grófhreyfingar og fá útrás fyrir hreyfiþörfinni með æfingum, leik og söng í flottu og öruggu umhverfi. 

Eftirfarandi hópar í boði:

    -Hópur 1: 2024 (1 árs +) : kl. 8:30-9:15
    -Hópur 2: 2023-2024 (1-2 ára ) : kl. 09:25-10:10
    -Hópur 3: 2023 (2 ára +): kl. 10:20-11:05

Þjálfari er Zsuzsanna Oláhné Szentimrey

Ef það eru einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is