Til baka
Fjölbreytt ljósmyndun
Til baka

Fjölbreytt ljósmyndun

  • 9 - 12 ára
  • 26.2.2026 - 28.5.2026
  • Gerðuberg 1
Á námskeiðinu er ljósmyndun tekin fyrir. Við erum umvafin ljósmyndun alla daga og er hún aðgengileg flestum okkar í símunum okkar í dag. En hvað er ljósmyndun? Á námskeiðinu munu nemendur læra að smíða myndavél, Camera obcura, taka myndir inni og úti, gera portrett, og læra um uppsetningu. Í gegn um ljósmyndirnar lærum við um umhverfi okkar, hvort annað og hluti sem skipta okkur máli. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa unnið ýmis verk og halda sýningu. Námskeiðið er 9 skipti og stendur kennsla frá 12.febrúar til 21 maí /ath verður ekki kennsla í páskafríi /. Kennt er á fimmtudögum frá kl: 15:30-17:00 fyrir börn 10-12 ára ( 5.-6.-7. bekkur) . Fyrsta lota er 12. febrúar-19. mars og önnur lota er 16. apríl-21.maí. Kennari: Linda Bolsakova.