Til baka
Krakkanámskeið HFR
Til baka

Krakkanámskeið HFR

  • 10 - 12 ára
  • 1.3.2026 - 30.5.2026
  • Hitt

Krakkanámskeið HFR verður haldið 27.5 - 24.6 og verða æfingarnar alla mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17:00-18:30 undir leiðsögn reyndra þjálfara. Æfingin hefst við Hitt húsið í Elliðaárdal. Námskeiðið er fjallahjólanámskeið (XC) og duga öll venjuleg fjallahjól (dempuð og ódempuð).

Námskeiðið endar með þátttöku í krakkaþraut HFR sem verður haldin 24. júní og er skráningargjaldið í þrautina innifalið í námskeiðsgjaldinu.

Búnaður sem ætlast er til að þátttakendur mæti með

Hjól (ath. að bremsur og gírar séu í lagi), hjálmur, vatsnbrúsi, auka slanga (ef springur) og föt eftir veðri.