
Listasmiðja í Grasagarðinum
- 10.6.2025 - 13.6.2025
- Múlavegur 1, 104 Reykjavík
Sumarnámskeiðin verða haldin í Grasagarðinum í Laugardal. Í boði eru tvö námskeið fyrir börn á aldrinum 8-10 ára
Hámarksfjöldi þátttakenda: 10
10. – 13. júní (4 dagar): Aldur 8 til 10 ára, kl. 09.00 – 13.00
Námskeiðsgjald: 22.000
16. – 20. júní (17. júní er frídagur): Aldur 8 til 10 ára, kl. 09.00 – 13.00
Námskeiðsgjald: 22.000
Þátttakendur kynnast Grasagarðinum í Laugardal og því fjölbreytta lífríki sem þar er að finna. Áherslan er að vinna með umhverfið í anda sjálfbærni og nota það sem náttúran gefur af sér á skapandi hátt. Unnið er með margvísleg náttúruefni og aðferðir handverks og lista. Markmið námskeiðsins er að auka meðvitund og tengsl þátttakenda við umhverfi sitt og náttúru í gegnum rannsóknir, uppgötvanir, leik og samveru.
Sumarnámskeiðin í Grasagarðinum hafa notið vinsælda frá árinu 2018. Leiðbeinandi námskeiðsins er Þórey Hannesdóttir, hönnuður og starfandi myndmenntakennari með meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur stýrt fjölskyldusmiðjum í samstarfi við Grasagarðinn í Reykjavík og Listasafn Árnesinga og hefur unnið sem sjálfboðaliði frá 2019 í smiðjum fyrir Örninn, minningar og styrktarsjóður fyrir börn sem hafa misst einhvern nákominn sér . Hún er einnig áhugamanneskja um skapandi útinám með áralanga reynslu af frístundastarfi með börnum. Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni sem má nota til fræðslu, rannsókna og yndisauka.
Skráning á netfangið: thorey.hannes.island@gmail.com