Til baka
Sumarnámskeið MJÖLNIS
Til baka

Sumarnámskeið MJÖLNIS

  • 9.6.2025 - 18.7.2025
  • Flugvallarvegur 3, 101 Reykjavík
Í sumar verður Mjölnir með námskeið fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Í þessu námskeiði verður farið yfir grunntækni í sjálfsvörn, glímu, styrktarþjálfun og þreki. Áhersla er lögð á að krakkarnir njóti sín sem best í faglegu umhverfi undir handleiðslu reyndra þjálfara á heimsmælikvarða. Þjálfarar á námskeiðinu: Gunnar Nelson, Kristján Helgi, Benedikt Karlsson, Jóhann Páll Jónsson, Davíð Örn Hugus ásamt aðstoðarþjálfurum. Þetta námskeið er fullkomið fyrir þá sem vilja: Aukið sjálfstraust Styrkjast líkamlega og andlega Læra sjálfsvörn og grunn hreyfingar í lyftingum (hnébeygja, bekkpressa o.fl.) Hreyfa sig úti (öskjuhlíð og nauthólsvík) og í góðum félagsskap. Tímabil: ​ 09.-13. júní - (5 DAGA NÁMSKEIÐ) kl. 09:00-12:00 35.000 kr. 16.-20. júní - (4 DAGA NÁMSKEIÐ/17. JÚNÍ FRÍ) kl. 09:00-12:00 28.000 kr. 30.-04. júlí - (5 DAGA NÁMSKEIÐ) kl. 09:00-12:00 35.000 kr. 07.-11. júlí - (5 DAGA NÁMSKEIÐ) kl. 09:00-12:00 35.000 kr. 14.-18. júlí - (5 DAGA NÁMSKEIÐ) kl. 09:00-12:00 35.000 kr. Innifalið í gjaldi er: Mjölnis Bolur Mjölnis Stuttbuxur Mjölnis Brúsi * 10% systkinaafsláttur. Hámarksfjöldi í hóp eru 20 börn. Æskilegt er að mæta í íþróttafatnað og með íþróttaskó.