
KvenOrka
- Allur aldur
- 11.2.2026 - 6.3.2026
- Síðumúli
Námskeið fyrir konur sem vilja meiri ákefð í kjölfarið af mömmuþjálfun
Þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara fyrir konur sem hafa lokið framhaldsnámskeið hjá okkur eða annars staðar og vilja meiri ákefð á æfingum. Fagleg stigvaxandi og fjölbreytt þjálfun þar sem unnið er í alls konar skemmtilegum lotum. Minni áhersla á grindarbotninn og meiri áhersla á almenna styrktar- og þolþjálfun. Æft er í litlum hópum í notalegu og persónulegu umhverfi.
Námskeiðið hentar konum með stoðkerfisverki sem og einkennalausum, sama hve langt er frá barnsburði. Almennt eru börn komin á hreyfingu í þessum hópi.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 9.15 - 10.00
Innifalið á námskeiðinu er þjálfun 2x í viku í 4 vikur, 1x heimaæfing í viku, 1x OpenGym æfing í viku og aðgangur að lokuðum Facebook-hópi.
Næstu námskeið byrja 3. mars í Síðumúla 28.