Til baka
Frístundaheimilið Hvergiland 11. - 15. ágúst 2025
Til baka

Frístundaheimilið Hvergiland 11. - 15. ágúst 2025

  • 6 - 9 ára
  • 11.8.2025 - 15.8.2025
  • Vættaborgir 9
Sumarfrístundin er milli klukkan 8:30 og 16:30. Börnin þurfa að hafa með sér þrjú nesti, morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu. Í upphafi hverrar viku er gerð dagskrá sem byggir á frjálsum leik, hreyfingu, útiveru, skapandi starfi, smiðjum, þemadögum og ferðum. Áhersla er lögð á að virkja börnin til ákvarðanatöku um hina ýmsu þætti starfsins. Við dagskrárgerð er reynt að hafa mismunandi dagskrá fyrir ólíka aldurshópa og mögulega verður samstarf milli frístundaheimila varðandi börnin úr 3. og 4. bekk t.d. um lengri ferðir. Dagskrá er send út í upphafi viku, mánudagar eru heimadagar eða með ferðir í nærumhverfinu.