Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í um 35 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri.
Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunnatriði badmintoníþróttarinnar, s.s. grip, uppgjöf og háhögg. Kennslan fer bæði fram á leikjaformi og í formi tækniæfinga og skiptist erfiðleikastig þeirra eftir aldri og getustigi þátttakenda. Einnig kynnast nemendur helstu leikreglum.
Við leggjum mikla áherslu á að námskeiðið sé fjölbreytt, ánægjulegt og skemmtilegt og við nýtum okkar frábæra staðsetningu í Laugardalnum. Einnig spennandi lóð umhverfis TBR húsið. Áhersla er lögð á fjöruga leiki og þroskandi og erum mikið útivið ef veður leyfir.
Á hverju námskeiði er m.a. farið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, í sund í Laugardalslaug. Í lok hvers námskeiðs er pylsupartí, leikið í hoppukastala og fleira skemmtilegt gert.
Boðið verður upp á bæði heils- og hálfsdagsvistun, frá kl. 9–13 og 9–16. Möguleiki er á gæslu frá kl. 8–9 og frá kl. 16–17. Þá er boðið upp á léttan hádegisverð fyrir þau börn sem eru í heilsdagsvistun. Þau sem þurfa sérstakt fæði verða að koma með slíkt. Reiknað er með að börnin séu "sjálfbjarga" á salernum.
Þjálfarar eru m.a. Atli Jóhannesson íþróttafræðingur, Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari, Jóhann Kjartansson badmintonþjálfari, o.fl. Öll börn í Sumarskólanum fá jafna viðurkenningu fyrir þátttöku og verðlaunapening eins og stefna ÍSÍ í þjálfun barna og unglinga segir til um.
Skráning á sumarnámskeiðin hefst 10. maí í síma 581-2266
Nánari upplýsingar:
S: 581-2266