Íþróttaskóli Hauka 2018
(Nánari upplýsingar um Knattspyrnuskóla PSV neðar á þessari síðu – skráningar á helga@haukar.is)
Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2018 fyrir börn fædd 2006-2011 með svipuðu sniði og áður. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og er óhætt að segja að börn og foreldrar hafi tekið þessu framtaki Hauka mjög vel. Yfir 1300 börn sóttu skólann hér síðasta sumar. Íris Óskarsdóttir og Emil Barja munu sjá um skólann í sumar. Íris er með BA gráðu í tómstundar- og félagsmálafræði frá HÍ og Emil BSc í íþróttafræði frá HR.
Beinn sími hjá Íþróttaskóla Hauka er 788-9200. Email – iris@haukar.is
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum. Allir kennarar skólans hafa mikla reynslu af þjálfun yngri barna.
Boðið er upp á gæslu frá 08:00-09:00 á morgnana, einnig er boðið upp á heitan hádegismat fyrir þá sem eru allan daginn hjá okkur (nema í júlí) og einnig fyrir þá sem eru hálfan daginn og eru að fara á æfingu beint í framhaldi. Þetta sumarið er gæsla innifalin í verði.
Við erum á facebook og er slóðin https://www.facebook.com/Ibrottaskolihauka. Gott er að fólk sé duglegt að fylgjast með þar inni því þar munum við setja inn myndir, hvað við erum að gera dag frá degi – breytingar á námskeiðum ef það verður og margt fleira.
Lýsing námskeiða
Lögð er áhersla á mikla hreyfingu á námskeiðunum. Miklil hreyfing með bolta og alhliða þjálfun við allra hæfi. Allir eru velkomnir í skólann.
Morgun námskeið byrja kl. 09:00 og er mæting í samkomusalnum á Ásvöllum. Gæsla verður fyrir iðkendur frá kl. 8:00 – 9:00 í samkomusalnum á Ásvöllum. Námskeiðum lýkur kl. 12:00 nema ef viðkomandi iðkandi er í mat.
Seinni parts námskeið byrja kl. 13:00 og er mæting í samkomusalnum á Ásvöllum.
Námskeiði lýkur kl. 16:00 og er hægt að sækja börnin í samkomusalnum – ATH engin gæsla er frá kl. 16:00 – 17:00.
Starfsfólk Íþróttaskólans mun taka á móti öllum börnum og sjá til þess að allir komist á réttan stað.
Öll námskeið eru vikunámskeið.
Skólinn er opinn fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitarmenn.
Vikur sem í boði eru:
1. 11. – 15. júní (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna (HM skólinn), fjölgreina)
2. 18. – 22. júní (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna+PSV Eindhoven skólinn, fjölgreina)
3. 25. – 29. júní (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna+Æft eins og meistaraflokksleikmaður, fjölgreina)
4. 2. júlí – 6. júlí (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna+Æft eins og atvinnumaður, fjölgreina)
5. 9. – 13. júlí (Námskeið fyrir hádegi, eingöngu fjölgreinanámskeið + leikskólabörn)
6. 16. – 20. júlí (Námskeið fyrir hádegi, eingöngu fjölgreinanámskeið + leikskólabörn)
7. 23. – 27. júlí (Námskeið fyrir hádegi, eingöngu fjölgreinanámskeið + leikskólabörn)
8. 7. – 10. ágúst (4 dagar) (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna, fjölgreina)
9. 13. – 17. ágúst (Heilsdagsnámskeið, karfa, handbolti, knattspyrna (HM skólinn), fjölgreina)
Hádegismatur Hádegismatur kostar 3.500 krónur fyrir vikuna. Hádegismatur er aðeins í boði frá 11. júní – 6.júlí og 7.ágúst-17.ágúst.
Þátttökugjöld Heilsdagsskóli kostar 9.000 krónur vikan (án hádegisverðar). Hálfsdagsskóli kostar 5.000 krónur (án hádegisverðar).
Skráningar Tekið verður við skráningum á vef Hafnarfjarðarbæjar, mínar síður, undir niðurgreiðslur og þar valið Haukar, frá og með 5. maí. Við skráningu þarf að ganga frá greiðslu. Hægt er að greiða með kreditkorti eða greiðsluseðlum. Einnig er hægt að taka við skráningu og greiðslu á staðnum, er komið er með barnið, posi á staðnum og einnig hægt að borga með peningum.
Í sumar verður boðið upp á systkinaafslátt, 15%, en til að geta nýtt sér þann afslátt þá verður að skrá á staðnum. ATH ekki er systkinaafsláttur af hádegismat.
Þessi skólar eru í boði sumarið 2018:
Fjölgreinaskóli Hauka fyrir 6-12 ára (2006-2011)
Námskeið allan daginn 11. júní – 6. júlí / Námskeið fyrir hádegi 9.- 27. júlí / Lokað 30. júlí-3. ágúst / Námskeið allan daginn 7.-17.ágúst.
Fjölbreytt íþrótta- og leikjanámskeið við allra hæfi, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna íþróttaiðkendur. Skipt er í hópa eftir aldri, getu og vinatengslum svo að allir fái að njóta sín. Öðru hverju er dagskráin brotin upp og farið í sundferð, gönguferð, hjólatúr o.s.frv. sem verður þá auglýst með góðum fyrirvara. Yfirumsjón með fjölgreinaskólanum verður í höndum Emils Barja
Fótboltaskóli/Handboltaskóli og Körfuboltaskóli fyrir 6-12 ára (2006-2011)
Boltaskólar handknattleiks-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeilda Hauka eru bæði fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í sinni boltagrein og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilað í ýmsum útfærslum. Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.
Íþróttaleikskólinn fyrir 2-5 ára (2012-2015)
Íþróttaleikskólinn verður í boði fyrir hádegi í 3 vikur þegar leikskólarnir fara í sumarfrí. Námskeiðið verður í anda leikjaskóla barnanna sem er starfræktur á veturna hjá Haukum þar sem markmiðið er að börnin fái jákvæð og skemmtileg fyrstu kynni af ýmsum leikjum og íþróttum. Skólinn fer fram inni í íþróttasalnum. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að vera með börnum sínum.
Sérnámskeið Knattspyrnudeildar Hauka
HM-skóli knattspyrnudeildar Hauka fyrir 6-14 ára (2004-2011) 11.-15. júní og 13.-17.ágúst
Komdu og hitaðu upp fyrir HM í Rússlandi. Við kynnum fyrir ykkur þjóðirnar sem spila með Íslandi í riðli og þeirra helstu stjórstjörnur á stuttum og skemmtilegum töflufundum á milli þess sem spilaður verður HM-fótboltamót og farið í skemmtilega fótboltaleiki. Fyrra HM-námskeiðinu lýkur svo með fyrsta leik Íslands á HM gegn Argentínu á laugardeginum. Verð: 5.000 krónur.
Boltaskóli Freys og fótboltaskóli Hauka fyrir 6-14 ára (2004-2011) 7.-10.ágúst
Námskeið í samstarfi við Frey Sverrisson sem er einn reynslumesti þjálfari landsins. Fjölbreyttar æfingar fyrir alla þá sem vilja bæta sig í fótbolta. Verð: 5.900 krónur.
Æfðu eins og meistaraflokksleikmaður 10-16 ára (2002-2007) 25.-29.júní
Þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna hjá Haukum bjóða upp á námskeið þar sem þátttakendur fá að kynnast þjálfunaraðferðum þeirra. Leikmenn meistaraflokka Hauka mæta og veita innsýn inn í heim metnaðarfullra leikmanna á Íslandi. Verð: 6.900 krónur.
Æfðu eins og atvinnumaður fyrir 10-16 ára (2002-2007) 2.-6.júlí
Námskeið í samstarfi við knattspyrnuþjálfunarfélagið Ask Luka. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á tækni- og einstaklingsþjálfun. Atvinnumenn koma í heimsókn og veita þátttakendum innsýn í heim atvinnumannsins. Verð: 6.900 krónur.
PSV Eindhoven skóli knattspyrnudeildar fyrir 10-16 ára (2002-2007) 18.-22.júní
Komdu og æfðu í viku eftir þjálfunaraðferðum PSV Eindhoven. Einstök og ógleymanleg reynsla fyrir unga leikmenn sem vilja æfa undir stjórn unglingaþjálfara PSV með aðstoð unglingaþjálfara Hauka. PSV Eindhoven er hollenskur meistari og býr yfir einni öflugustu unglingaakademíu Hollands sem í áratugi hefur verið í fararbroddi í þróun ungra leikmanna i Evrópu. Með félaginu leikur Íslendingurinn Albert Guðmundsson.
2005 – 2007 módel æfa fyrir hádegi og 2002-2004 módel æfa eftir hádegi.
Námskeiðið er í boði fyrir alla, bæði iðkendur Hauka sem og annarra félaga. Sérstök kjör eru í boði fyrir Haukaiðkendur (skráning á ,,Mínar síður“). Verð: 19.900 krónur fyrir Haukaiðkendur. Aðrir: 23.900 (skráning með því að senda tölvupóst á helga@haukar.is).
Æfingar í sumar fyrir 12 ára (fæddir 2006) og eldri, handbolti og körfubolti.
í sumar verða æfingar fyrir eldri iðkendur hjá handknattleik- og körfuknattleiksdeild með breyttu sniði. Deildirnar munu hafa fastar æfingar frá kl. 16:00 á virkum dögum með þjálfara og mun nánari upplýsingar verða kynnt fljótlega, þ.m.t verð, æfingatafla og þjálfarar.