Vettvangur starfsemi frístundamiðstöðva er frítími barna og unglinga en einnig hverfastarf ýmiss konar og þverfaglegt samstarf. Auk þessa bjóða frístundamiðstöðvarnar upp á frístundaaðstöðu fyrir almenning úti í hverfum borgarinnar.
Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf undir leiðsögn fagfólks. Frístundamiðstöðvar sjá um rekstur félagsmiðstöðva og frístundaheimila í sínu hverfi. Að auki fellur þar undir starfsmannastjórnun, rekstur, fjármál, húsnæðismál, tækjamál o.fl.