VILTU TAKA ÞÁTT ?
Skátarnir eru alþjóðleg æskulýðshreyfing sem vinnur að valdeflingu ungmenna í þeim tilgangi að virkja þau til jákvæðra áhrifa í sínu samfélagi og til þátttöku í að bæta þann heim sem við búum í. Skátarnir eru gefandi bæði fyrir ungt fólk og fullorðna sjálfboðaliða sem sinna starfinu með því. Í skátastarfi öðlast þú ekki eingöngu reynslu, kunnáttu og minningar heldur er félagsskapurinn líka frábær, tækifærin endalaus og starfið kemur í sífellu skemmtilega á óvart.
Skráning: https://www.sportabler.com/shop/segull
Fundartímar:
Drekaskátar 7 – 9 ára (2014 – 2016)
Fimmtudagar 15:30 – 17:00
Foringjar: Freyja og Ísak
Fálkaskátar 10 – 12 ára (2011 – 2013)
Þriðjudögum 16:00 – 17:30
Foringjar: Ína og Ísak
Í Segli stunda börn, unglingar og fullorðnir öflugt og skemmtilegt skátastarf.
Skipulagt skátastarf er í boði fyrir börn frá 7 ára aldri og er aldurskipting sem hér segir:
Drekaskátar: 7-9 ára
Fálkaskátar: 10-12 ára
Nánari upplýsingar má finna á segull@skatarnir.is
Skátafélagið Segull er annað tveim skátafélögum í Breiðholti. Starfssvæði félagsins er Seljahverfið, Stekkirnir og Bakkarnir (Neðra-Breiðholt). Segull býður upp á skátastarf fyrir ungmenni á aldrinum 8 – 25 ára og leggur mikla áherslu á samfélagsverkefni, útivist og náttúruvernd.